Kæru vinir,
í þessum töluðu orðum er stórvinur minn og tilvonandi meðleigjandi, Stehn, á tónleikum með bandinu Hot Chip. Stehn er þó ekki maður einsamall á tónleikunum því hinn tilvonandi meðleigjandi minn og einnig tilvonandi stórvinur, Vitamin A, hristir einnig á sér rassinn í kvöld. Það var þó (tilvonandi) tilviljun, nema þeir séu að reyna að vera lúmskílúmsk og skilja mig útundan. Á meðan þeir skemmta sér konunglega hef ég farið nokkrar ferðir á chatroulette (ég er enn að leita að sófa sjarmörnum), horft á Greys Anatomy og gert allskonar annað ómerkilegt. Þetta er í alvöru ekki frásögu færandi.
6 mars munum við þríeykið svo halda innreið okkar á framtíðarheimilið, þar bíður okkar kristalsljósakróna og líka mjög ljótar flísar. Svo eru líka 6 risastórir borðstofustólar, en ekkert borðstofuborð. Ég stefni á að nota línuna "fáðu þér sæti, sæti." Mjög oft, og er ekki við öðru að búast en að það falli í góðann jarðveg. Annars er íbúðin snilld.
Ég dag fór ég í atvinnuprufu á einu kaffihúsi. Það er smá frásögu færandi. Aðalega fyrir þær sakir að upp að mér vatt sér fastakúnni sem spurði mig að nafni. Sagði ég eins og venjulega að ég væri kölluð Lóa (það er svo mikilvægt að vera með svona alter-ego í útlöndum, djók.) Hann ákvað þá að bregða fyrir sig betri fætinum og smellti fram brandaranum "So, I guess you´re pretty down all the time? hehe." Ég skildi ekkert hvað á mig stóð veðrið. Eftir smá stund kom svo í ljós að hann hélt ég héti Low. Sem ég heiti því miður ekki.

Hundarnir eru færslunni algjörlega óviðkomandi. Ég vil bara svo mikið eignast svona. Þeir eru svo fallega ljótir. Svo hef ég líka verið með frekar mikið blæti fyrir postulíns dýrum undanfarið, það er ekkert til að skammast sín fyrir.
5 ummæli:
LIKE
þessar guðdómlegu postulínsverur myndu sóma sér prýðisvel með magnúsi og marteini mána (loðnu ógnvekjandi kisu-styttu-eitthvað-hlutunum úr fríðu frænku) sem ég held þú hafir ekki séð en kúra á litlu borði í stofunni á i8
eruð þið steindór annars hætt saman?
Gyða - go blogging.
Vissirðu að það er til heimasíða sem er: www.loanerkomin.blogspot.com ég las hana alveg í smá MJÖG undrandi þar til ég mundi að þú ert ekki 38 ára einstæð móðir í Kópavogi og fórst svo sannarlega ekki á MAMMA MIA singalong (sjá síðustu færslu hjá komnu lóunni)
Sakna þín og vil fá nýja heimilisfangið :)
GYÐA SERIOUSLY, HAVE YOU STOPPED UNDERSTANDING ICELANDIC? THE KLAKE IS VERY LONESOME WITHOUT YOU!
Bloggaðu!
Svaraðu facebook skilaboðunum mínum!
Svaraðu sms-inu mínu!
Annars fer ég að halda að Steindór hafi selt þig til að eiga fyrir lúxus íbúðinni MEÐ ENGU NETI!
Þetta með the klake var djók fyrir klakann sem er ísland, svona þegar fólk segir hallærislegar línur: Hvað er að frétta af klakanum? Sem er út í hött því Ísland er ekki klaki. Grænland er klaki. En ég veit ekki hvað er að frétta af Grænlandi. Kannski veit Þórey það. Ég spyr hana. Hafðu samskipti við umheiminn. Annars mætum við Kristín F Welding til London með Bjart í ferðatöskunni. Og það væri bara of mikið fyrir svona skottín eins og Bjart. Hann myndi deyja úr lífsreynslu. Viltu það?
Ókei, á morgun er 27.mars - hvað þýðir það? Jú, það er mánuður síðan þú bloggaðir.
Takk fyrir ekkert.
Skrifa ummæli